Karl Pétur Jónsson hefur hafið störf sem fulltrúi forstjóra Dagsbrúnar, segir í fréttatilkynningu. Gunnar Smári Egilsson er forstjóri fyrirtækisins.

Karl Pétur hefur undanfarin fjögur ár verið framkvæmdastjóri almannatengslafyrirtækisins Inntaks, sem hann stofnaði ásamt öðrum.

Karl Pétur, sem er fæddur árið 1969, er stjórnmálafræðingur að mennt og er formaður Félags stjórnmálafræðinga. Kona hans er Guðrún Tinna Ólafsdóttir og eiga þau tvö börn.