Karl Pétur Jónsson býður sig fram í 3. sæti lista Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor.

Karl Pétur er giftur Tinnu Ólafsdóttur, dóttur Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands. Þau Karl Pétur og Tinna eiga fjögur börn. Fram kemur í tilkynningu um framboðið að hann er framkvæmdastjóri Mostly Human Entertainment, fyrirtækis í alþjóðlegri framleiðslu menningarefnis.

Hann hefur um áratugaskeið verið ráðgjafi í almannatengslum, lengst af sem framkvæmdastjóri Inntaks Almannatengsla, en einnig fyrir bandaríska sjávarútvegsfyrirtækið Umami Sustainable Seafood.