Karl Sölvi Guðmundsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Austurbrúar. Hann hefur störf í desember. Hann tekur við starfi Þorkels Pálssonar sem lét af störfum eftir stutta veru í júlí. Austurbrú hefur verið án framkvæmdastjóra síðan þá. Valdimar O. Hermannsson, stjórnarformaður Austurbrúar, segir í samtali við vb.is stjórn Austurbrúar hafa skipt störfum framkvæmdastjórans niður á milli sín síðan þá.

Staða framkvæmdastjóra Austurbrúar var auglýst á haustdögum og sóttu sextán um hana.

Austurbrú er sjálfseignarstofnun stofnuð á grunni Þekkingarnets Austurlands, Þróunarfélags Austurlands, Markaðsstofu Austurlands og Menningarráðs Austurlands og annast auk þess daglegan rekstur Sambands sveitarfélaga á Austurlandi.

Fram kemur í tilkynningu frá Austurbrú að Karl er fæddur í Reykjavík 3. desember 1960 og er giftur Unni Hörpu Hreinsdóttur, þau eiga fjögur uppkomin börn og sex barnabörn. Hann lauk 4. stigs námi við Vélskóla Íslands 1984 og sveinsprófi í rennismíði tveimur árum síðar. Hann fór til háskólanáms í Ohio árið 1991 þar sem hann lauk grunnnámi í tölvuverkfræði 1996 og meistaranámi 1998. Leiðin lá aftur til Bandaríkjanna 2001 þar sem Karl lauk doktorsprófi í Rafmagnsverkfræði frá Wright State University 2004.

Karl hafi síðastliðin fimm ár starfað í háskólaumhverfinu hér á landi, fyrst sem dósent og deildarforseti við rafmagns og tölvuverkfræðideild Háskóla Íslands og síðar sem forstöðumaður tæknifræðináms Keilis og framkvæmdastjóri Orkurannsókna.

Meðfram námi sínu í Bandaríkjunum starfaði Karl hjá hátæknifyrirtækinu LaserMike um 4 ára skeið. Að loknu meistaranámi réði Karl sig til Tern Systems þar sem hann starfaði sem verkefnastjóri við rannsóknir og þróun á samskiptabúnaði fyrir ISAVIA. Að loknu doktorsnámi starfaði Karl um tíma við hugverkavernd hjá Árnason Faktor í Reykjavík.

Þá segir í tilkynningunni að helstu áhugamál Karls kallist vel á við hugmyndafræði Austurbrúar sem varð til s.l. vor með sameiningu Þekkingarnets, Þróunarfélags, Markaststofu og Menningarráðs Austurlands, ásamt stjórnsýsluhluta SSA.