Karl Gauti Hjaltason
Karl Gauti Hjaltason
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Karl Gauti Hjaltason sinnir um þessar mundir starfi sýslumanns í Vestmannaeyjum. Hann hefur sinnt því starfi síðan árið 1998 en mun láta af þeim störfum er hann hefur starf skólastjóra lögregluskólans 1. júlí.

Aðspurður segir Karl Gauti að skólastjóri lögruegluskólans sé í raun og veru einn af lögreglustjórum landsins. Hann telur sig því vel ágætlega undirbúinn í sínu núverandi starfi sem sýslumaður, og því lögreglustjóri Vestmannaeyja, fyrir því sem framundan er.