Karl Axelsson hæstaréttarlögmaður hefur verið settur dómari við Hæstarétt Íslands. Greint er frá þessu á heimasíðu LEX.

Setning Karls mun standa frá 16. október næstkomandi til 15. apríl 2015 og mun hann gegna störfum Viðars Más Matthíassonar, sem hefur fengið leyfi frá Hæstarétti á sama tímabili.

Karl hefur flutt fjölda dómsmála á sviði eignar-, fasteigna- og auðlindaréttar. Þá hefur hann kennt eignarrétt við lagadeild Háskóla Íslands frá árinu 1992.