Félagið Toska, sem er í eigu Karls Wernerssonar, forstjóra og aðaleiganda Lyfja og heilsu, hefur nýtt sér fjárfestingaleið Seðlabankans, en hún veitir fjárfestum færi á að kaupa krónur fyrir evrur á um það bil 20% afslætti, með því að gefa út skuldabréf fyrir 240 milljónir króna í lok júní.

Í umfjöllun um mál þetta í viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag segir að Karl hafi ekkert viljað tjá sig um málið við blaðið.

Í blaðinu er vitnað í útgáfulýsingu skuldabréfsins, þar sem kemur fram að það ber 7,8% óverðtryggða vexti, er til tíu ára og heimilt er að stækka útgáfuna í 300 milljónir króna. Fyrirtækið Toska var stofnað í apríl og er Karl sá eini er skipar stjórn félagsins.