Aðalfundur Askar Capital var haldinn 8. mars síðastliðinn. Á fundinum var kjörin ný stjórn. Úr stjórn fer Guðmundur Arason og í hans stað kemur Karl Wernersson.

Stjórnin hefur kjörið Karl Wernersson stjórnarformann Askar Capital. Karl tekur við stjórnarformennsku af Hauki Harðarsyni sem gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarformennsku. Haukur hefur verið hefur stjórnarformaður bankans frá stofnun og starfar áfram innan stjórnar.