Í fréttatilkynningu frá Forseta Íslands kemur fram að hann hafi boðað Katrínu Jakobsdóttur, formann Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs, til fundar við sig á morgun klukkan hálfellefu. Ekki er greint frá því hvað standi til að ræða en gera má ráð fyrir því að það tengist væntanlegri ríkisstjórn.

Formenn flokkana funduðu með þingflokkum sínum nú eftir hádegi þar sem þeir fóru yfir stjórnarsáttmálann. Fyrir liggur að formennirnir munu einnig funda með flokksmönnum á morgun, miðvikudag.