Forsætisráðherra hefur endurskipað Dr. Katrínu Ólafsdóttur, lektor við Háskólann í Reykjavík, fulltrúa í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands, að því er fram kemur í frétt ráðuneytisins.

Katrín er lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík og hefur verið fulltrúi í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands frá 3. mars 2012.

Hún starfaði áður sem hagfræðingur hjá greiningardeild Landsbanka Íslands 2002-2003, forstöðumaður þjóðhagsspár hjá Þjóðhagsstofnun 1999-2002 og sem sérfræðingur á efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins 1991-1998.

Katrín lauk doktorsprófi í vinnumarkaðshagfræði frá Cornell háskóla í New York árið 2009. Áður hafði hún lokið meistaranámi í hagfræði við sama skóla og AB gráðu í hagfræði með stærðfræði sem aukagrein við Occidental College í Los Angeles.