Katrín Eva Björgvinsdóttir hefur hafið störf sem sölu- og markaðsstjóri heilsuvörudeildar hjá Artasan. Katrín Eva útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands árið 2007 og stundaði framhaldsnám í alþjóða markaðsfræði – og viðskiptastjórnun við CBS háskólann í Kaupmannahöfn á árunum 2007 til 2009.

Hún starfaði áður sem vörumerkjastjóri hjá Ölgerðinni og sá meðal annars um endurmörkun á Florídana vörumerkinu og nú síðast sem vörumerkjastjóri sérvörudeildar hjá Íslenskt Ameríska, þar sem hún var með nokkur af stærstu vörumerkjum Procter & Gamble. Katrín Eva er fædd og uppalin á Sauðárkróki en býr nú ásamt fjölskyldu sinni í Mosfellsbæ.

Artasan sérhæfir sig í sölu og markaðssetningu á lyfjum og heilsuvörum. Fyrirtækið dreifir heilsuvörum og lyfjum til apóteka, heilsubúða, dagvöruverslana, bensínstöðva, tannlækna, spítala og hjúkrunarheimila.