Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra sækist eftir að leiða lista Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæminu og gefur kost á sér í forvali Vinstri-grænna í Reykjavík sem haldið verður 7. mars næstkomandi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Katrínu en hún leiddi lista VG í Reykjavíkurkjördæmi norður í alþingiskosningum 2007 og hefur setið á þingi fyrir hreyfinguna síðan.

Katrín er með meistarapróf í íslenskum bókmenntum og fékkst við  útgáfustörf, kennslu og ritstörf áður en hún settist á þing. Þá var hún varaborgarfulltrúi fyrir Reykjavíkurlistann frá 2002 til 2006 og hefur gegnt embætti varaformanns Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs síðan 2003.

Katrín er gift Gunnari Sigvaldasyni og saman eiga þau tvo syni.