Katrín M. Guðjónsdóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri Skeljungs. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Undanfarin tvö ár hefur Katrín starfað sem markaðsstjóri hjá Innnes. Katrín starfaði þar áður sem markaðsstjóri hjá N1 og starfaði þar á árunum 2008-2013.

Katrín er með MBA gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og B.A. gráðu í grafískri hönnun og markaðsfræði.   

Katrín er gift Pétri Arasyni og eiga þau þrjú börn.