Katrín Olga Jóhannesdóttir hefur verið kjörin ný í stjórn Nasdaq Iceland (Kauphallarinnar). Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Katrín Olga hefur víðtæka og yfirgripsmikla reynslu úr viðskiptalífinu. Hún hefur gegnt stjórnunarstöðum innan fjölbreyttra fyrirtækja og atvinnugreina í gegnum tíðina, m.a. hjá Símanum og Já, og árið 2019 stofnaði hún ráðgjafarfyrirtækið Kría consulting ehf.

Að auki hefur Katrín Olga mikla reynslu af stjórnarsetu en hún situr nú í stjórn Landsnets, Haga og Eyrir Venture Management, en áður sat hún m.a. í stjórn Icelandair Group og í Bankaráði Seðlabankans. Þá á hún sæti í fjárfestingarráði Akurs framtakssjóðs og situr í háskólaráði Háskólans í Reykjavík.  Katrín Olga hefur gegnt ýmsum öðrum trúnaðarstörfum, m.a. formennsku í Viðskiptaráði Íslands á árunum 2016-2020, fyrst kvenna og varaformennsku í Samráðsvettvangi um aukna hagsæld á Íslandi.

Katrín Olga er með BS-gráðu í viðskiptum frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í viðskiptum frá háskólanum í Óðinsvéum.