Katrín Olga Jóhannesdóttir hefur selt hlut sinn í Já hf. sem á upplýsingatæknifyrirtækið Já og rannsóknafyrirtækið Gallup. Hún hefur jafnframt hætt sem stjórnarformaður félagsins. Katrín Olga hefur gegnt stjórnarformennsku hjá félaginu frá upphafi eða frá árinu 2005 á þeim tíma hefur félagið farið í gegnum miklar breytingar á vöruframboði í takti við tækniþróun í heiminum. Núverandi eigendur hafa keypt hlut hennar og mun varaformaður stjórnar, Einar Pálmi Sigmundsson, taka við formennsku í stjórn félagsins. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

„Þetta var ekki auðveld ákvörðun að hætta hjá Já, en ég ég kveð félagið í sátt og þakklæti. Það hefur verið forréttindi að taka þátt í því ævintýri sem rekstur Já hefur verið síðustu 12 árin með öllu þessu frábæra starfsfólki. Á þessum tíma hefur félaginu verið umbreytt frá því að vera sérhæft þjónustu-fyrirtæki yfir í að vera fyrirtæki sem er drifið áfram af tækni- og markaðshugsun. Ég er á því að sífelldar umbreytingar þroski mann, nú legg ég á vit nýrra ævintýra og mun halda áfram að láta til mín taka í atvinnulífinu,“ segir Katrín Olga Jóhannesdóttir.

„Það hafa verið mikil forréttindi og ánægja að fá að vera samferða Katrínu Olgu í þessari vegferð Já síðustu 12 ár. Það eru því tímamót í sögu félagsins við brotthvarf hennar. Ég óska Katrínu Olgu velfarnaðar í því sem hún tekur sér fyrir hendur,“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir