Katrín Júlíusdóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, undirritaði á föstudag lánasamning við Vaðlaheiðargöng hf. vegna framkvæmdar við jarðgöng undir Vaðlaheiði. Þetta kemur fram á heimasíðu ráðuneytisins.

Lánið er veitt á grundvelli laga sem Alþingi samþykkti fyrr á þessu ári. Upphæð lánsins er 8,7 milljarðar króna og er fjármögnun verkefnisins tryggð með undirritun ráðherra. Það var ÍAV sem átti lægsta tilboðið í gerð ganganna ásamt svissneska fyrirtækinu Matri og hljóðaði tilboðið upp á 8,8 milljarða króna.