Katrín Júlíusdóttir tekur við embætti fjármálaráðherra þann 1. október. Oddný Harðardóttir, núverandi fjármálaráðherra, mun hverfa úr ríkisstjórn. Fréttastofa Rúv greinir frá í morgun en Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra kynnti tillöguna á þingflokksfundi í morgun.