Í könnun meðal þingmanna sögðust 36 þingmenn hlynntir því lokað yrði fyrir auglýsingatekjur fyrir Ríkisútvarpið, en á móti vildi margir að RÚV yrði bætt tekjutapið með auknum fjárframlögum úr ríkissjóði að því er Fréttablaðið greinir frá.

Viðskiptablaðið hefur fjallað um tillögur fjölmiðlanefndar þar sem þetta var meðal tillagna, en eins og fram kom í fréttum í morgun er RÚV með um fimmtung af auglýsingamarkaði . Af þingmönnunum 36 svaraði einungis einn þingmaður neitandi.

„Ég vil ekki rýra fjárhag RÚV, en tel eðlilegt og hef verið fylgjandi því að takmarka hlut þess á auglýsingamarkaði,“ segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. Andrés Ingi Jónssonar og Rósa Björk Brynjólfsdóttir þingmenn Vinstri grænna tóku í sama streng og formaður þeirra.