Upplýsinga mun vera að vænta á næstunni um kaup Baugs á Moss Bros, að sögn Gunnars Sigurðssonar, forstjóra Baugs.

Verið er að ganga frá ýmsum málum og munu þau skýrast fljótlega.

Eins og kunnugt er stendur Baugur í viðræðum við Moss Bros um kaup á keðjunni. Hefur Baugur í nokkurn tíma reynt að yfirtaka Moss Bros, sem er tískukeðja sem sérhæfir sig í herratísku.

Eins og áður hefur komið fram hljómar yfirtökutilboð Baugs upp á 40,2 milljónir punda.