Kaup Marels á AEW og Delford eru sterkur leikur hjá félaginu, að sögn greiningardeildar Landsbankans.

Marel greindi frá kaupunum á bresku félögunum í dag fyrir samtals 1,7 milljarða króna.

?Við fyrstu sýn virðist vöruframboð AEW og Delford falla vel að núverandi vöruframboði Marels," segir greiningardeildin.

"AEW og Delford hafa auk þess framleitt róbóta til pökkunar matvæla í vörulínu sinni og mun þekking félagsins á slíkri framleiðslu væntanlega koma sér vel í frekari þróun Marels á sviði róbótatækni."