Oddaflug, eignarhaldsfélag Hannesar Smárasonar, keypti hlutabréf að virði 2,3 milljarðar í FL Group á föstudaginn síðastliðinn, segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands í morgun.

Hannes Smárason er forstjóri FL Group og fruminnherji í félaginu. Viðskipti með bréf í FL Group námu 2,6 milljörðum á föstudaginn, samkvæmt upplýsingum greiningardeildar Glitnis

Oddaflug keypti 112.902.162 hluti á genginu 19,75 og hækkaði gengið um 11,4% í kjölfarið. Heildarfjöldi hluta eignarhaldsfélagsins í FL Group eftir viðskiptin nemur 1.564.085.939 hlutum, sem samsvarar 19,7%.