Í október síðastliðnum var tilkynnt um samninga Reita við eigendur fasteignasjóðanna SRE I og SRE II, sem eru í rekstri Stefnis, um kaup Reita á tilteknum fasteignafélögum. Ákveðnir fyrirvarar, þar með talið samþykki Samkeppniseftirlitsins, voru gerðir fyrir kaupunum.

Félaginu hefur borist ákvörðun Samkeppniseftirlitsins vegna málsins þar sem fram að eftirlitið telji ekki forsendur til að aðhafast vegna kaupa Reita á fasteignafélögum í rekstri Stefnis. Kemur þetta fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Þar segir að unnið verður að því á næstu vikum að klára frágang viðskiptanna og að tilkynnt verði þegar ljóst sé hvenær yfirtaka félagsins á hinu keypta fari fram.