Dótturfélag Íslenskra verðbréfa var á meðal nokkurra smærri fjármálafyrirtækja sem ráku peningamarkaðssjóði. Skömmu eftir bankahrunið voru að mestu ónýt skuldabréf keypt út úr peningamarkaðssjóðum Landsbanka, Kaupþings og Glitnis fyrir samtals 83,6 milljarðakróna. Bankarnir voru þá allir á forræði ríkisins.
Þau uppkaup gerðu það að verkum að bankarnir þrír gátu greitt hlutdeildarskírteinishöfum sínum stóran hluta af eign þeirra í sjóðnum til banka. Smærri fjármálafyrirtækjunum bauðst ekki slík fyrirgreiðsla þrátt fyrir að bréf sömu útgefenda væru í þeirra sjóðum.
Með vilja ráðamanna
Sævar Helgason, framkvæmdastjóri Íslenskra Verðbréfa segir í viðtali við Viðskiptablaðið að þetta hafi verið gríðarlegt högg. „Það blasir við að viðskiptavinir okkar voru beittir miklu misrétti. Rannsóknarskýrsla Alþingis sýndi fram á að þetta hafi verið gert með vitund ogvilja ráðamanna, enda gefu rþað augaleið að aðilar sem eru skipaðir í bráðabirgðastjórnir nýju bankanna taka ekki ákvarðanir um slíkar fjárfestingar, hálfum mánuði eftir að þeir voru skipaðir, án þess að hafa pólitískt bakland fyrir þeirri ákvörðun. Við erum sannfærð um að svo hafi verið.Þetta olli því mikilli gremju meðal okkar og viðskiptavinaokkar. Við vorum auðvitað undir pressu frá viðskiptavinum okkar um að reyna að leysa málið og borga út úr okkar sjóði. Flestir skildu þó okkar stöðu. Við gátum í raun ekkert gert.“
Kvörtuðu til ESA
Í kjölfarið kvörtuðu smærri fjármálafyrirtækin til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) undir þeim formerkjum að um ólögmætan ríkisstyrk hefði verið að ræða þegar ríkisbankarnir keyptu skuldabréfin úr sjóðum stóru bankanna þriggja. Sævar segir þó óvíst hverju niðurstaða ESA muni skilafyrir viðskiptavini sína. „Það tók ESA um það bil ár að komast að niðurstöðu um að hefja formlega rannsókn á málinu. Upphaflega vonuðum við að við myndum fá sömu niðurstöðu og sjóðir bankanna fyrir okkar viðskiptavini. En við bíðum nú niðurstöðu ESA og munum ákveða næstuskref í framhaldi af henni.“
Ítarlegt viðtal er við Sævar í síðasta tölublaði Viðskiptablaðsins. Áskrifendur geta nálgast eintak af því undir liðnum tölublöð hér að ofan.