Hópur fjárfesta hefur nýtt kauprétt að 18% hlutafjár í N1 hf. Kaupverð hlutanna er 2.547 milljónir króna eða sem nemur 14,15 krónum á hlut. Útgefið hlutafé N1 hf. er einn milljarður króna að nafnverði. Samsvarar kaupgengið því að virði alls hlutafjár sé 14,15 milljarðar króna.

Kaupendahópurinn samanstendur m.a. af lífeyrissjóðum, verðbréfasjóðum og einstaklingum, sem að uppistöðu til eru fyrrum eigendur skuldabréfaflokksins ESSO 05 11 og samþykktu árið 2011 að skipta skuldabréfaeign sinni út fyrir hlutabréf í N1 hf. ásamt kauprétti að samtals 18% hlut í félaginu. Greiðsla kaupverðs og afhending hluta fer fram í lok október.

Seljendur eru Framtakssjóður Íslands og Íslandsbanki. Þessir aðilar eru enn tveir stærstu hluthafar félagsins, en áforma að minnka hlut sinn frekar í almennu útboði í aðdraganda fyrirhugaðrar skráningar á hlutabréfum N1 í kauphöll.