KEA fjárfestingafélag hefur tekið tilboði hóps fjárfesta í ríflega 67% eignarhlut í fjárfestingasjóðnum Tækifæri hf. en KEA á fyrir 73% eignarhlut í sjóðnum. Stærstu eignir Tækifæris eru 44% eignarhlutur í Jarðböðunum í Mývatnssveit og  35% hlutur í Sjóböðunum á Húsavík. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu Kea.

Steingrímur Birgisson, framkvæmdastjóri Hölds á Akureyri, fer fyrir fjárfestahópnum sem stendur að kaupunum en auk Hölds munu Íslenskar heilsulindir og Kjálkanes koma inn í hluthafahóp Tækifæris. Íslenskar heilsulindir, sem er í meirihlutaeigu Bláa lónsins, á fjórðungshlut í Jarðböðunum.

„Gangi kaupin í gegn munum við breyta tilgangi og starfsemi Tækifæris á þann hátt að það verði eignarhaldsfélag um eignarhluti í Jarðböðunum og Sjóböðunum,“ er haft eftir Steingrími.

„Ég hef setið í stjórn Jarðbaðanna og þekki vel til starfseminnar. Það hefur blundað í mér að ef tækifæri gæfist á aukinni aðkomu Hölds að þessum rekstri þá væri það gaman. Þarna er frábært starfsfólk að vinna góða vinnu og ég tel að með örlítið breyttum áherslum sé hægt að gera enn betur.  Núna gafst tækifærið og með sterka aðila með Höldi í kaupendahópnum sem eru Íslenskar heilsulindir og Kjálkanes er ég viss um að við getum nýtt enn betur þau tækifæri sem fyrir okkur liggja í ferðamennsku á svæðinu,“ segir Steingrímur.

Meðal annarra hluthafa sem áfram verða í hluthafahópi Tækifæris eru Stapi lífeyrissjóður og Íslensk verðbréf. Stapi fer með 15% hlut í Tækifæri og Íslensk verðbréf 8,8% hlut. Þá á Landsbankinn 0,8% eignarhlut og Arion 0,6% hlut.

Eigið fé Tækifæris var bókfært á 2,26 milljarða króna í árslok 2020 en félagið er nær skuldlaust. Tækifæri hagnaðist um 48 milljónir á síðasta ári, en gangvirðisbreytingar eignarhluta í félögum voru jákvæðar um 61,3 milljónir króna.

Fengu boð sem þau gátu ekki hafnað

Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri Kea, segir aðkomu fjárfestingafélagsins að nýsköpunarverkefnum á félagssvæði sínu fjarri lokið með þessari sölu. Kea muni í kjölfar viðskiptanna fara fram eftir öðrum leiðum heldur en áður þar sem tilgangi Tækifæris verður breytt í kjölfar viðskiptanna.

„Tækifæri hf. er sjóður sem er að fullu fjárfestur og hefur á liðnum árum m.a. komið að uppbyggingu baðstaða með árangursríkum hætti og er henni í reynd lokið enda þau verkefni orðin að þroskuðum fyrirtækjum og starfsemi þeirra þess eðlis að þau halda umsvifum sínum óháð eignarhaldi“ segir Halldór.

„Við fengum boð í þennan eignarhlut sem við töldum okkur ekki geta hafnað,“ er haft eftir Halldóri.  „Hver veit nema að þetta leiði fram frekari og ný tækifæri en það mun allt koma í ljós síðar.“