Penninn hefur keypt rekstur Bókaverslunar Þórarins Stefánssonar á Húsavík af Friðriki Sigurðssyni og Magneu Magnúsdóttur. Samtímis kaupir félag tengt Pennanum fasteign Bókaverslunarinnar að Garðarsbraut 9.

Bókaverslun Þórarins Stefánsson var stofnuð árið 1909 og þar hafa óslitið síðan verið seldar bækur, ritföng og gjafavara og síðar einnig raftæki og minjagripir.

„Við höfum staðið vaktina í Bókaverslun Þórarins í rúm 15 ár, fyrst með foreldrum Friðriks og síðar tvö ásamt góðu starfsfólki.  Okkur fannst tími til kominn að breyta til á þessum tímapunkti,“ segja Friðrik Sigurðsson og Magnea Magnúsdóttir.

Penninn rekur nú 15 verslanir undir nafni Pennans/Eymundsson á landinu. Þar af 9 á höfuðborgarsvæðinu en einnig eru verslanir á Akranesi, Akureyri, Ísafirði, Keflavík, Keflavíkurflugvelli og Vestmannaeyjum. Húsavík verður því sjöunda verslunin utan höfuðborgarsvæðisins. Penninn áformar að reka verslun undir sínu nafni í húsnæðinu að Garðarsbraut 9.