Leiðbeinandi verð í hlutafjárútboði Íslandsbanka verður á bilinu 71 til 79 krónur á hlut. Miðað við þetta verðbil verður markaðsvirði bankans á bilinu 142-158 milljarðar króna. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Íslandsbanka.

Gildi lífeyrissjóður, Lífeyrissjóður verzlunarmanna og sjóðir í stýringu hjá Capital World Investors, RWC Asset Management LLP hafa hver um sig skuldbundið sig til að kaupa 46.153.846 og 46.153.846, 76.923.077 og 30.769.231 hluti í Íslandsbanka á endanlegu útboðsgengi. Samtals hafa þeir skuldbundið sig til að kaupa 200 milljónir hluti, eða um 10% af heildarhlutafé bankans. Hlutur kjölfestufjárfestanna nemur um 15 milljarða króna miðað við miðpunkt leiðbeinandi verðbilsins.

Hlutafjárútboð Íslandsbanka hefst klukkan 09:00 í dag og áformað er að útboðinu ljúki á hádegi þriðjudaginn 15. júní. Hlutabréf Íslandsbanka verða svo tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq á þriðjudaginn 22. júní.

Til sölu eru að lágmarki 25% af útgefnu og útistandandi hlutafé bankans en heimilt að stækka útboðið í allt að 35% af útgefnu útistandandi hlutafé bankans.

„Það er ánægjulegt að sjá hlutafjárútboð Íslandsbanka hefjast eftir mikla og vandaða vinnu síðustu mánuði. Það hefur lengi staðið til að draga úr umfangsmiklu eignarhaldi ríkisins á fjármálamarkaði og koma hér á fyrirkomulagi í líkingu við það sem þekkist í nágrannalöndum okkar. Útboðið er fyrsta skref í þá átt. Með skráningunni verður íslenskur hlutabréfamarkaður stærri og fjölbreyttari, og það er jákvætt að fjárfestingarkostum almennings og fagfjárfesta fer sífellt fjölgandi,“ segir Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í tilkynningu.

„Ég hlakka til að kynna Íslandsbanka fyrir væntanlegum fjárfestum á komandi kynningarfundum og um leið stefnu okkar um þróun á starfsemi bankans. Frá því að ég tók við starfi bankastjóra árið 2008 hefur Íslandsbanki lagt grunn að sterku og farsælu viðskiptalíkani sem hefur sannað gildi sitt og stuðlað að auknu virði fyrir eigendur bankans, bæði í formi virðisaukningar og arðgreiðslna. Þetta líkan hefur staðist þær áskoranir sem komið hafa upp vegna heimsfaraldursins og bankinn er því í stakk búinn að njóta góðs af endurreisn íslenska hagkerfisins. Ég tek því fagnandi að eiga þess kost að koma bankanum á ný í eigu einkaaðila,“ segir Birna Einarsdóttir , bankastjóri Íslandsbanka.

„Það er mér mikil ánægja að sjá upphaf hlutafjárútboðs Íslandsbanka verða að veruleika og mikilvægt augnablik fyrir Bankasýslu ríkisins. Við teljum að markaðsaðstæður séu ásættanlegar og útboðið til samræmis við ákvörðun fjármála- og efnahagsráðherra. Sölumeðferðin hefur gengið samkvæmt áætlun, sem má þakka miklu og góðu framlagi allra þeirra sem komið hafa að henni. Við erum þess fullviss að Íslandsbanki eigi sér trausta framtíð sem skráð félag á markaði,“ Lárus Blöndal, stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins.