Júpiter rekstrarfélag hf. hefur keypt 750 þúsund hluti í Origo hf, en m.v. núverandi markaðsvirði félagsins fengust bréfin á tæplega 18 milljónir króna.

Eftir kaupin á rekstrarfélagið, sem heldur utan um eignarhlutina fyrir sjóði í rekstri félagsins, samtals 23.623.450 hluti, sem samsvara 5,08% hlutafjár í félaginu.

Þegar þetta er skrifað er hvert bréf félagsins að andvirði 23,50 krónur, eftir 0,64% hækkun í 59 milljóna viðskiptum það sem af er degi. Er því heildarandvirði hluta félagsins rétt rúmlega 555 milljóna króna, en viðbótareignarhluturinn er á rétt um 17,6 milljónir króna.