Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag að selja fasteignafélaginu Slippnum ehf. lóðina við Mýragötu 10 til 12 á 142 milljónir króna.

Jens Sandholt, einn af forsvarsmönnum félagsins, segir í samtali við fréttastofu RÚV að með þessum kaupum verði hægt að bæta sextíu herbergjum við Hótel Marina en félagið á það húsnæði.

Deiliskipulag fyrir lóðina var samþykkt í febrúar þar sem gert er ráð fyrir 1.520 fermetra ofanjarðar og 400 fermetra í kjallara. Byggingarétturinn kostar 108 milljónir og gatnagerðargjöld 33,5 milljónir.

108 herbergi eru á Icelandair hótel Reykjavík Marina núna en með fyrirhugaðri stækkun bætast við 60 til 90 herbergi.