Morgunkornaframleiðandinn Kellogg hefur keypt flöguframleiðandann Pringles af Procter & Gamble, sem framleiðir meðal annars Gilette rakdótið og Ariel þvottaefnin.

Kaupverðið er 2,7 milljarðar dala, rúmir 330 milljarðar króna. Þegar hafði fyrirtækið Diamond, sem framleiðir m.a. Pop Secret, gert samning um kaup á Pringles en þeim kaupum var rift.

Kellogg hyggst fjölga þeim svæðum sem Pringles vörurnar eru boðnar til sölu.

Pringles
Pringles