Iceland Seafood International (ISI) hefur náð samkomulagi um kaup á 85% hlut í spænska fyrirtækinu Ahumados Dominguez fyrir 12,4 milljónir evra, eða sem nemur um 1,9 milljörðum króna. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Yfirtakan kemur til með að styrkja stöðu Iceland Seafood á spænska markaðinum en Ahumados Dominguez er meðal sjö þekktustu vörumerkjum á sínu sviði á spænska smásölumarkaðnum, samkvæmt tilkynningunni. Þá muni samruninn einnig veita ISI tækifæri til að nýta stöðu Ahumados Dominguez til að selja þorskafurðir.

Velta Ahumados Dominguez á síðasta ári nam 19,3 milljónum evra, eða um 2,9 milljörðum króna og EBIDTA hagnaður félagsins var um 257 milljónir króna. Fram kemur að kaupverðið sé í samræmi við viljayfirlýsingu sem skrifað var undir í maí þar sem kveðið var um að kaupverðið myndi nema 8,8 falddri EBIDTA félagsins að frádregnum skuldum og handbæru fé. Kaupin verða fjármögnuð með lántöku og eigin fé.

Pedro Mestanza verður áfram framkvæmdastjóri spænska fyrirtækisins og mun fara með 15% hlut á móti Iceland Seafood. Hann fær jafnframt kauprétt til næstu fimm ára að 5% hlut til viðbótar í Ahumados.

Bjarni Ármannson, forstjóri Iceland Seafood:

„Þetta er mjög mikilvægt skref í okkar stefnu að styrkja stöðu okkar á spænska smásölumarkaðnum og á sama tíma ryðja okkur til rúms á sístækkandi markaðnum fyrir lax á Spáni. Ahumados Dominguez er frábær viðbót við núverandi stöðu okkar á Írlandi. Samstæðan mun á ári hverju framleiða hágæða laxavörur úr 6.000 megatonn af hráefni, að mestu leyti fyrir smásölumarkað. Við höfum trú á að reynslumikla stjórnendateymi Ahumados Dominguez og sterkt vörumerki fyrirtækisins muni gefa okkur tækifæri að ná fram vexti til framtíðar."