KPMG hefur gengið frá kaupum á ráðgjafarfyrirtækinu CIRCULAR Solutions, sem stofnað var árið 2018 og sérhæfir sig í ráðgjöf og þjónustu á sviði sjálfbærni og sjálfbærra fjármála.

Félögin hafa hingað til aðstoðað viðskiptavini við útgáfu grænna og félagslegra skuldabréfa, mótun og innleiðing sjálfbærnistefnu, markmiðasetning, áhættu- og mikilvægisgreiningar, lífsferils- og virðiskeðjugreiningar, innleiðing á hringrásarhagkerfinu, áreiðanleikakannanir, staðfesting á sjálfbærniupplýsingum, skýrslugjöf og samskipti við hagaðila.

„Við hjá CIRCULAR komum ný inn á markaðinn árið 2018 og höfum síðan notið mikils trausts og hjálpað mörgum stórum aðilum hér á landi á sinni vegferð til sjálfbærni,“ segir Bjarni Herrera, framkvæmdastjóri CIRCULAR:

„Við hlökkum til að halda því áfram sem hluti af öflugu teymi KPMG, með breiðari nálgun en áður og með stuðningi frá KPMG á alþjóðavísu sem setur okkur í lykilstöðu til að innleiða bestu starfshætti í vegferð Íslands til sjálfbærni. Nú er rétti tímapunkturinn fyrir þessi umskipti hjá okkur, því umfang þessa sviðs, sjálfbærni og ófjárhagslegra upplýsinga, fer vaxandi, kröfur aukast og regluverk verður sífellt flóknara," bætir Bjarni við.

Helga Harðardóttir, meðeigandi hjá KPMG, er að vonum ánægð með kaupin.„Aukin áhersla á sjálfbærni í starfsemi og stefnumörkun felur í sér mikil tækifæri fyrir atvinnulífið og þau fyrirtæki sem gera það með skipulögðum og markvissum hætti eru líklegri til að ná árangri á komandi árum og áratugum. Sá hópur viðskiptavina sem vill laga stefnu sína og starfsemi að málefnum sem tengjast sjálfbærni fer ört vaxandi og KPMG hefur lagt áherslu á að vera í fararbroddi í ráðgjöf á því sviði. Við erum hæstánægð að fá CIRCULAR til liðs við okkur því saman verðum við í enn betri stöðu til að veita framúrskarandi þjónustu," segir Helga.