Fjárfestahópur á vegum kínverska auðmannsins Guochuan Lai, mun taka yfir enska fótboltaliðið West Bromwich Albion. Þetta kemur fram á Twittersíðu knattspyrnuliðsins. Jeremy Peace, sem átti tæplega 90% í félaginu, á samkvæmt BBC að hafa samþykkt tilboð Lai. Upphæðin hefur ekki verið gefin upp, en gera má ráð fyrir því að félagið hafi kostað um 150 milljónir punda. Fyrrverandi yfirmaður Blackburn, John Williams mun taka við stjórn félagsins.