Kaupfélag Skagfirðinga hefur fengið heimild Samkeppniseftirlitsins til að kaupa M-veitingar ehf., sem reka Metro veitingastaðina.
Veitingastaðir Metro eru annars vegar í Skeifunni í Reykjavík og hins vegar á Smáratorgi í Kópavogi, en í báðum tilvikum voru þar áður reknir veitingastaðir McDonalds sem ekki eru með ósvipað vöruúrval og Metro býður upp á í dag.
Í ákvörðun SKE kemur fram að í samrunaskrá segi að þann 31. október 2020 hafi KS og hluthafar M-veitinga undirritað samning um kaup KS á öllu hlutafé í M-veitingum. Kaupin séu hluti af uppgjöri skulda Álfasögu ehf., systurfélags M-veitinga, og Guma ehf. gagnvart KS og dótturfélögum þess.
Samkeppniseftirlitið segir samruna félaganna hvorki raska samkeppni né hafa skaðleg áhrif á neytendur, enda sé markaðshlutdeild Metro „óveruleg, sama hvaða mælikvarði sé notaður.“
Í því samhengi ber stofnunin saman veltu Metro árið 2019 sem hafi numið rúmlega 400 milljónum króna, saman við heildarveltu allra veitinga- og skyndibitastaða á Íslandi sem hafi numið um 80 til 90 milljörðum króna árið 2018.
„Sé eingöngu litið til aðila sem höfðu að lágmarki 200 milljóna króna veltu árið 2018 og störfuðu á höfuðborgarsvæðinu sé heildarveltan 40-45 milljarðar króna.“
Viðskiptablaðið sagði frá því á dögunum að Kaupfélagið hefði selt líftæknifélagið Protis en eignast fimmtungshlut í Vilko í viðskiptunum. Jafnframt hefur verið fjallað um aukin hlut KS í Árvakri , útgáfufélagi Morgunblaðsins, en kaupfélagið hagnaðist um 5 milljarða árið 2018 .
Fyrir er Kaupfélagið með bein eða óbein yfirráð í eftirtöldum félögum:
- Esja gæðafæði ehf. 100%
- FISK Seafood ehf. 100%
- Fóðurblandan ehf. 53,71%
- Vörumiðlun ehf. 100%
- Tengill ehf. 100%
- Esja gæðafæði ehf. 100%
- Fóðurfélagið ehf. 100%
- Nýprent ehf. 100%
- Trésmiðjan Borg ehf. 100%
- Sláturhús Hellu hf. 68%
- Vogabær ehf. 100%
- Íslenskar sjávarafurðir ehf. 100%
- Protis ehf. 100%
- Iceprotein ehf. 100%
- KS-IcePro ehf. 100%
- IceCorpo Iceland ehf. 50%
- Norðlensk Orka ehf. 92,9%
- Brennigerði ehf. 100%
- Háaborg fjárfestingar ehf. 77%
- Möðrufell ehf. 50%
- Feykir ehf. 100%
- Sláturhús KVH ehf. 50%
- Steinull ehf. 50%