Gengi hlutabréfa stoðstækjafyrirtækisins Össurar lækkaði um 1,42% í tæplega 800 þúsund króna viðskiptum. Þetta var mesta lækkun dagsins. Þá lækkaði gengi hlutabréfa Marel um 0,95%, bréf Icelandair Group fór niður um 0,76% og Haga um 0,53%.

Úrvalsvísitalan hreyfðist í takti við það þróunina á evrópskum hlutabréfamörkuðum í dag og fór niður um 0,96%. Hún endaði í rétt tæpum 1.070 stigum. Ekki var mikil velta á bak við lækkunina, 87,5 milljónir króna.