Kauphöllin hefur til skoðunar viðskipti sem urðu með hlutabréf KB banka (KAUP) vegna mikilla verðbreytinga að því er segir í tilkynningu sem send hefur verið inn í kerfi Kauphallarinnar.

Þar kemur fram að Kauphöllin íhugar niðurfellingar á grundvelli greinar 5.7.3 í aðildarreglum NOREX. Frekari upplýsingar verða veittar eins fljótt og auðið er.