Heildarviðskipti með hlutabréf í septembermánuði námu rúmum 13.096 milljónum eða rúmum 595 milljónum á dag. Þessu til samanburðar var veltan með hlutabréf í ágúst mánuði tæpar 2.817 milljónir. Mest voru viðskipti með bréf Bakkavör Group 8.377 milljónir og með bréf Alfesa 2.138 milljónir. Markaðsvirði skráðra félaga var 204 milljarðar í lok síðasta mánaðar og lækkaði um 1% á milli mánaða.
Í frétt frá Kauphöllinni kemur fram að markaðsvirði bréfa Össurar nam rúmum 52 milljörðum og er það félag stærst að markaðsvirði skráðra félaga. Næst í stærð er Marel en markaðsvirði þess nemur rúmum 38 milljörðum og síðan bréf Føroya Banki en markaðsvirði þess er rúmir 35 milljarðar.
Hlutabréfavísitölur – Úrvalsvísitalan (OMXI6) lækkaði um 1,17% milli mánaða og stendur nú í 809,3 stigum. Af atvinnugreinavísitölum hækkaði vísitala iðnaðar (IX20PI) mest eða 3,5%.