Heildarviðskipti með hlutabréf í febrúarmánuði námu rúmum 1.777 milljónum eða 89 milljónum á dag.  Þessu til samanburðar var veltan með hlutabréf í janúarmánuði rúmar 3.493 milljónir, eða 184 milljónir á dag.

Þetta kemur fram á mánaðarlegu yfirliti Kauphallarinnar.

Mest voru viðskipti með bréf Össurar, eða 262 milljónir og með bréf Marels, 191 milljónir.

Þá kemur fram að markaðsvirði skráðra félaga var 220 milljarðar í lok síðasta mánaðar og hækkaði um 10% á milli mánaða.  Markaðsvirði bréfa Össurar nam rúmum 76 milljörðum og er það félag stærst að markaðsvirði skráðra félaga.  Næst í stærð er Marel en markaðsvirði þess nemur rúmum 50 milljörðum og bréf Føroya Banki en markaðsvirði þess er rúmir 38 milljarðar.

Úrvalsvísitalan, OMXI6, hækkaði um 9% milli mánaða og stóð í 879,2 stigum í lok mánaðarins.  Af atvinnugreinavísitölum hækkaði vísitala nauðsynjavöru (IX30PI) mest eða 41,5%.

Heildarviðskipti með skuldabréf námu rúmum 198 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar 9,9 milljarða veltu á dag.  Í janúarmánuði nam veltan 9,7 milljörðum á dag.

Mest voru viðskipti með lengri flokka ríkisbréfa, RIKB 25 0612 41,5 milljarðar og þá með RIKB 19 0226 34 milljarðar.  Alls námu viðskipti með ríkisbréf 130,6 milljörðum en viðskipti með íbúðarbréf námu 56,6 milljörðum.