Svo virðist sem markaðsaðilar ætli að hrista lækkun gærdagsins af sér en við opnun kauphallarinnar í morgun hækkuðu hlutabréf á ný. Það sem af er morgni hefur vísitalan hækkað um 0,75%, þar af hefur FL Group hækkað um 3,18% og því að mestu leiti unnið upp lækkun gærdagsins.