Nasdaq Iceland, eða Kauphöllin, hefur samþykkt umsókn stjórnar Skeljungs hf., um töku hlutabréfa félagsins til viðskipta á Aðalmarkaði Kauphallarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu Kauphallar Íslands.

„Samþykkið er háð því að félagið uppfylli skilyrði reglna fyrir útgefendur fjármálagerninga á Nasdaq Iceland hf. um dreifingu hlutafjár fyrir fyrsta viðskiptadag. Gert er ráð fyrir að fyrsti viðskiptadagur með hlutabréf Skeljungs á Aðalmarkaði verði 9. desember 2016. Kauphöllin mun tilkynna um fyrsta viðskiptadag með minnst eins viðskiptadags fyrirvara,“ segir þar.