NASDAQ OMX Iceland hefur samþykkt töku hluta í Eimskipi til viðskipta á að uppfylltum skilyrðum um dreifingu hlutafjár. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöllinni. Gert er ráð fyrir að að fyrsti viðskiptadagur með hluti Eimskips á markaði verði 16.nóvember nk. en tilkynnt verður um fyrsta viðskiptadag með minnst eins viðskiptadags fyrirvara.