Nasdaq Iceland hefur samþykkt umsókn stjórnar Reita fasteignafélags hf. um töku hlutabréfa félagsins til viðskipta á Aðalmarkaði Kauphallarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu .

Samþykkið er háð því að félagið uppfylli skilyrði reglna fyrir útgefendur fjármálagerninga á NASDAQ OMX Iceland hf. um dreifingu hlutafjár fyrir fyrsta viðskiptadag.

Gert er ráð fyrir að fyrsti viðskiptadagur með hluti Reita á Aðalmarkaði verði 9. apríl, 2015. Kauphöllin mun tilkynna um fyrsta viðskiptadag með minnst eins viðskiptadags fyrirvara.