Kauphöllin hefur formlega samþykkt framkomna beiðni Skipta um töku hlutabréfa félagsins úr viðskiptum.

Hlutabréfin verða tekin úr viðskiptum eftir lokun viðskipta föstudaginn 6. júní 2008 með vísan til ákvæðis 7.1 í Skilyrðum Kauphallarinnar fyrir töku hlutabréfa til viðskipta.

Eins og greint var frá í fyrradag hefur Exista nú eignast nánast allt hlutafé í Skiptum og vitað var að félagið yrði afskráð.