Kauphöllin hefur samþykkt beiðni slitastjórnar SPRON um töku skuldabréfa félagsins (SPR 98 1, SPR 01 1, SPR 05 1, SPR 05 2, SPR 06 1, SPR 06 3) úr viðskiptum og eins beiðni slitastjórnar Frjálsa fjárfestingarbankans um töku skuldabréfa félagsins (FFB 97 1) úr viðskiptum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöllinni en skuldabréfin verða tekin úr viðskiptum í lok dags í dag.