Tæknilegt vandamál í viðskiptakerfinu í Kauphöllini hefur verið leyst. Markaðir munu opna kl. 12:30 og opnunaruppboð hefst kl. 12:15.

Vegna tæknilegra truflana varð seinkun á opnun markaða í Kauphöllinni. Fyrr í morgun var tilkynnt að markaðir myndu ekki opna fyrr en klukkan 11:30 en kl. 11:20 var send önnur tilkynning þar sem tilkynnt var um frekari seinkun.