Arion banki og Eignasafn Seðlabankans hafa ritað undir viljayfirlýsingu um kaup og sölu á öllum eignum Dróma. Drómi heldur utan um kröfur Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis og Frjálsa fjárfestingarbankans. Samhliða þessu munu fara fram viðræður um kaup Arion banka á einstaklingslánum Hildu, dótturfélags Eignasafns Seðlabankans.

Fram kemur í tilkynningu að á næstu dögum munu þeir sem koma að viljayfirlýsingunni hefja vinnu við að meta eignir Dróma og Hildu með það að markmiði að ná samkomulagi um kaup og sölu eignanna. Gera megi ráð fyrir að á næstu þremur til sex mánuðum liggi fyrir hvort  af samkomulagi verði.

Markmiðið með þessu er að koma einstaklingslánasöfnum Dróma og Hildu í varanlegri búning til framtíðar litið og ljúka slitameðferð á SPRON og Frjálsa með samþykki kröfuhafa slitabúanna.