Kaupþing banki hefur bætt við eign sína í HB Granda, samkvæmt flöggun til Kauphallar. Eignarhluturinn nemur nú 30,9% en var 25,02% fyrir viðskiptin. Um er að ræða 100.484.543 hluti. Miðað við gengi félagsins á markaði er verðmæti viðskiptina um 1,2 milljörðum króna.

Fyrr í dag var tilkynnt um að SJ1 hafi selt 5,85% hlut í HB Granda eða 99.884.543 hluti að nafnverði.