Kaupþing banki er á meðal hugsanlegra kaupenda af breska eignarhaldsfélaginu Tragus Holding, sem á meðal annars bresku veitingahúsakeðjuna Cafe Rouge, samkvæmt heimildum breska blaðsins The Times.

Unnið hefur verið að skráningu Tragus Holding í kauphöllina í London, en Times segir að mögulegt sé að hætt verði við skráninguna þar sem 3-4 fjárfestingasjóðir hafi áhuga á að kaupa fyrirtækið fyrir um 300 milljónir punda.

Times nefnir fjárfestingasjóðina Cinven og PPM Capital og Kaupþing banka sem hugsanlega kaupendur. Kaupþing banki hefur ekki verið að kaupa fyrirtæki í Bretlandi, en hefur fjárfest með samstarfsaðilum.og fjármagnað yfirtökur.