Skilanefnd Kaupþings banka hf. hefur óskað eftir því að viðskiptum með hlutabréf félagsins í Kauphöllinni verði hætt.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallar

Til grundvallar beiðninni liggur bréf stjórnar Kaupþings banka hf. til Fjármálaeftirlitsins (FME) dagsett 8. október síðastliðinn þar sem stjórnin segir af sér og óskar eftir því að skilanefnd skipuð af FME taki yfir rekstur bankans, samkvæmt lögum um sérstakar aðstæður á fjármálamarkaði.