Kaupþing banki hefur verið valinn besti bankinn á Norðurlöndum og einnig besti bankinn á Íslandi af alþjóðlega viðskiptatímaritinu Euromoney. Ármann Þorvaldsson forstjóri Kaupþings Singer & Friedlander tók við verðlaunum Euromoney, fyrir hönd bankans, við hátíðlega athöfn í Lundúnum í kvöld, 12.júlí.

Fram kemur í tilkynningu frá Euromoney að verðlaunin séu þau virtustu í hinum alþjóðlega bankaheimi. Í rökstuðningi fyrir útnefningunni er vísað til mikils vaxtar Kaupþings banka í fyrra og glæsilegrar arðsemi eiginfjár.

"Það er sérlega ánægjulegt að hljóta þessi verðlaun á alþjóðlegum vettvangi og þau eru viðurkenning á því sem við erum að gera. Staða okkar í Norður-Evrópu hefur verið að styrkjast og verðlaunin efla okkur til frekari sóknar á þessum markaði. Þetta eru verðlaun sem allir starfsmenn bankans hafa unnið fyrir; sem liðsheild náum við árangri," segir Hreiðar Már Sigurðsson forstjóri Kaupþings banka í tilkynningu bankans.