Finnska fjármálaeftirlitið samþykkti á fundi sínum í dag að veita dótturfélagi Kaupþings Búnaðarbanka hf. í Finnlandi, Kaupthing Sofi Oyj, bankaleyfi. Um næstu áramót mun því heiti þess breytast í Kaupthing Bank Oyj. Kaupþing Búnaðarbanki hf. og dótturfélög hans munu þá hafa bankaleyfi í fimm löndum, Íslandi, Danmörku, Svíþjóð, Lúxemborg Finnlandi.